16.11.2011 | 15:21
Barnungur strákur v.s. fullorðin kona
Þetta er merkileg frétt. Ekki bara vegna þess sem gekk á í þessu skipi heldur líka vegna dómsins sem féll í kjölfarið.
Orðrétt í frétt vísis um dóminn stendur:
"Einn mannanna er meðal annars dæmdur fyrir að hafa „pungað" drenginn. Þá var hann staddur í stýrihúsinu. Sá dæmdi sagði þá: „Pungum hann".
Drengurinn vissi ekki hvað það væri, en sá dæmdi beraði kynfæri sín og otaði þeim að andliti drengsins, sem kom sér undan með því að slá í kynfærin."
Stelum aðeins meira frá vísi.is:
"Þá greindi drengurinn einnig frá því að eitt sinn, þegar hann var að gera að fiski, beygði hann sig niður vegna þess að hann var að fara að æla af sjóveiki. Þá kom einn hinna dæmdu og potaði fingri sínum í rass drengsins."
Einnig kemur eftirfarandi fram í dómnum:
a) Drengurinn var niðurlægður með orðum
b) Hann þurfti að þola áreitni sem gerði hann hræddan um líf sitt.
c) Hann upplifði hjálparleysi þar sem hann er skiljanlega minni að burðum en fullorðnir menn (enda bara 13 ára)
d) Munnsöfnuður var grófur, menn voru að þykjast ríða hver öðrum
e) Klámmynd var sett í vídjó-tækið, sjónvarpið hækkað í botn og strákurinn læstur inni í sjónvarpsherberginu.
f) Stráknum var hótað nauðgun.
Dómurinn hljóðar upp á eftirfarandi refsingar:
1) Dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi
2) Dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi
3) Dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi
4) dæmdur í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Semsagt - fyrir að troða kynfærum í andlit á barni, troða putta í endaþarminn á því, hræða úr því líftóruna svo það óttist um líf sitt, hóta því nauðgun, láta það horfa á klámfengið efni ofl ofl þá er þyngsta refsingin 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Stöldrum nú aðeins við. Í kjölfar dómsins kemur eftirfarandi frétt á vefmiðlunum.
http://visir.is/umbodsmadur-barna-fagnar-domi-yfir-sjomonnum/article/2011111119293
Fyrirsögnin er: "Umboðsmaður barna fagnar dómi yfir sjómönnum"
Er ekki eitthvað "absúrd" í gangi hérna? Er umboðsmaður virkilega að fagna 3 mánaða skilorðsbundnum dómi (og þremur vægari dómum) yfir mönnum sem brjóta kynferðislega á 13 ára dreng?
Spólum aðeins til baka og leikum okkur aðeins með þetta mál. Prófum að snúa dæminu við. Hvað ef fyrirsögnin hefði verið svona:
"Sjómenn níddust á 13 ára stúlku"
Í fréttamiðlum hefðu svo verið lýsingar á hvernig mennirnir hótuðu stúlkunni nauðgun, neyddu hana til að horfa á klámmynd, niðurlægðu hana með orðum, tróðu tittling í andlitið á henni og boruðu fingri í endaþarminn á henni.
Í kjölfarið hefði svo fylgt dómur upp á mest 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi og í framhaldi af því hefði umboðsmaður barna "fagnað dómi yfir sjómönnum".
Ég er ekki alveg að sjá þetta gerast "in real life". Rifjum aðeins upp eitt atvik sem átti sér stað síðasta sumar.
Fullorðin kona fékk sér í glas. Síðar um kvöldið þurfti hún að pissa og gerði það á austurvelli. Leigubílstjóri sá það, stökk útúr bílnum sínum og boraði tveimur puttum upp í rassinn á henni. Hún kærði hann, hann var dæmdur í 18 mánaða fangelsi.
Þessi KONA fékk putta í rass. Hún fékk ekki lók í andlit eða nokkuð annað af því sem er talið upp hér að ofan.
Hver er munurinn á þessum dómum? 3 mánuðir skilorðsbundnir v.s. 18 mánuðir óskilorðsbundnir?
Hvað í atviki fullorðnu konunnar er grófara en í atviki 13 ára stráksins?
Er það:
a) Konan er KONA en strákurinn STRÁKUR?
b) Konan fékk tvo putta í rass en strákurinn "bara" einn?
10.7.2009 | 00:44
Dagur í lífi Alþingismanns.
Bjarni Benediktsson fæddist með silfurskeið í rassinum. Hann varð pirraður af því að það vantaði lögfræðiálit frá Bretlandi inn í Ice-save skjölin. Almenningur á Íslandi er pirraður yfir því að í hvert skipti sem þeir setja bensín á bílinn sinn... þá verður veskið hans Bjarna silfur-refs sjálfkrafa þykkara.
Öskur Skarphéðinsson segir að það sé sér ekki ofvaxið að biðja þingið afsökunnar..... gott og vel, hvað svo? Öskur Skarphéðinsson er löngu löngu löngu útbrunninn og dauður stjórnmálamaður. Ég held að hann ætti frekar að eyða tíma sínum í að gera eitthvað sem hæfir hans menntun..... t.d. að skoða ánamaðka.
Öskur og Steingrímur Joð geta kannski farið saman út að leika. Steingrímur Joð - jarðfræðingur fer að róta í moldinni, tekur upp ánamaðka og lætur Öskur hafa þá. Svo geta þeir safnað í fötur, bæði mold og möðkum, farið svo heim og gert tilraunir.
Þegar þeir félagar eru orðnir þreyttir og komnir með sultardropa á nefið líta þeir upp í loftið. Þar sjá þeir Fokker50 flugvél Flugfélags Íslands fljúga lágflug yfir. Þeir skottast á lappir og veifa upp í loftið í von um að Jóhanna sem hellir appelsínudjúsi í pappamál farþega, sjái þá.
Svo halda þeir glaðir heim á leið. Á miðri heimleiðinni átta þeir sig á að þeir hafi gleymt að huga að því hvað tímanum leið. Þeir valhoppuðu í hvor í sína áttina og ákváðu að hittast 25 mínútum síðar og verða samfó út á þing.
"Síjúúú" kallar Öskur, "síjúúútúúú" kallar Steingrímur á móti.
25 mínútum síðar hittast þeir félagar aftur. Steingrímur búinn að setja moldina í kæli og Öskur búinn að setja ánamaðkana í sultukrukku......... því næst setti hann sultukrukkuna aftur á sinn stað, undir kodda eiginkonunnar.
Þeir hlaupa út á strætóstöð og rétt ná strætó sem var óvenjusnemma á leið. Aftast í strætó situr blindfullur náungi. Náungi sem er ekki neitt. Náungi sem ákvað ásamt konu sinni að búa til framtíðar umhverfisráðherra í stað þess að mennta sig.
Steingrímur: "Svaaaaabbi..... my man!!! What's up niggah??? hohohoho"
Svavar: "Ekki neitt man. Ég hef bara verið að dandalast í Svíþjóð, hundleiðinlegt. Hefur þú ekki eitthvað fyrir mig að gera?"
Steingrímur: "Svabbi... of course hef ég fullt fyrir þig að gera. Hey!!!!!! ÉG VEIT!!! Vertu fyrir okkur í samninganefnd úti í þarna.....hvað heitir það aftur ? Æji Öskur..... hvað heitir aftur þarna þú veist?
Öskur: "Malta?"
Steingrímur: "Æji nei þarna hitt þarna.... landið sem er eins og skór í laginu.... eða þú veist, stígvél."
Öskur: "Jáááááá Bretland."
Steingrímur: "JÁBB!!! Bretland it is."
Svavar: "Samningahvað? Samninganefnd? Hvað er það?"
Steingrímur: "Það veit ég ekki maður. Er það ekki eitthvað sem er sett á brauð hahahaha.... Nei annars kemur það í ljós. Við þurfum að fara niður á Þing til að komast að því.....Hey Svabbi, Koddu bara með niggah, geðveikt stuð, kaffi og læti, getur látið renna af þér."
Öskur: "Hey, síminn minn er að hringja. Hver ætli sé að hringja núna? Vonandi ekki DV. Þeir eru alveg óþolandi...... sjúkk það er bara konan."
Öskur svarar í símann: "Halló..... Halló..... Árný !!! HALLÓ"
Það er engu líkara en að Árný hafi rekið sig í takkan á símanum og hafi fyrir vikið hringt óvart í Öskur. Öskur áttar sig fljótlega á því eftir að hafa ráðfært sig við hina tvo vitringana. Hann fer að hlusta.
Árný (sem er í símanum): "Snati..... Snaaaati...... SNAAATI !!! ÞAÐ ER SULTUTÍMI !!!"
Öskur nennir ekki að hlusta á svona vitleysu og skellir á.
Þegar þeir loksins komast inn á Austurvöll ganga þeir að Alþingishúsinu. Sem betur fer var hurðin opin vegna þess að hurðarhúnninn er svo hátt uppi á hurðinni að þeir ná ekki upp í hann.
Þeir ganga upp stigann, hengja af sér útifötin og ganga inn í sal. Þar sjá þeir hvar Sigmundur Davíð er í bíló við Kristján Möller og Guðni Ágústsson er að kenna Katrínu Júlíusdóttur og Katrínu Jakobsdóttur að mjólka uppblásið naut. Þess á milli klórar Guðni sér í "náranum".
Svo heyrist bjöllusláttur. Allir hætta því sem þeir eru að gera... nema Guðni sem heldur áfram að klóra sér í náranum. Það halda honum engin bönd.
Salóme Þorkelsdóttir stendur við bjölluna og Ásta Ragnheiður henni á vinstri hönd. Salóme pikkar í bjölluna þrisvar (ding ding ding) og segir: "Svona er þetta nú einfalt, bara dingdingding"
Ásta Ragnheiður tryllist af gleði, tekur útúr sér dudduna og öskrar: "Takk takk takk fyrir þetta Salómehehehehe" og hleypur að bjöllunni og byrjar að berja, DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING DING.
Sigmundur Davíð hendir frá sér bílnum sínum og segir fúll: "Það er ekki hægt að vera í bíló í svona látum." og fer út.
Því næst halda allir áfram að leika, Ásta Ragnheiður lemur á bjölluna og Alþingi er komið á fullt skrið.
|
Fór fram á afsökunarbeiðni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.11.2011 kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)


agustolafur
astamoller
petit
birnag
bjarney
bjarnihardar
binna
bryndisisfold
dofri
eirikurbergmann
gudni-is
guffaluff
vglilja
hannesgi
730
birkire
jakobsmagg
jensgud
jonmagnusson
magnusthor
markusth
bonham
omarragnarsson
ottarfelix
palmig
hnodri
marzibil
einherji
sigurjonth
snorris
steindoringi
thorbjorghelga
doddilitli